Heimild: Setanta
Vonir Harry Redknapp stjóra Tottenham um að kaupa Stewart Downing frá Middlesbrough virðast vera að verða að engu eftir að síðarnefnda félagið tilkynnt í dag að tilboð hans í leikmanninn hafi verið hlægilegt.
,,Þetta er hlægilegt tilboð," sagði Keith Lamb framkvæmdastjóri Boro við News of the World. ,,Hverjir halda Spurs eiginlega að þeir séu?"
,,Þeir vældu þegar Dimitar Berbatov fór til Manchester United í sumar en þeir seldu hann samt fyrir toppverð. Svo vilja þeir fá aðra leikmenn á hlægilegu verði og reyna að gera þá órólega. Þetta er það sem gerðist hérna, tilboðið þeirra er grín."
,,Afhverju ættum við að vilja selja okkar bestu leikmenn til næstu keppinauta okkar? Stewart fer ekkert."



