Heimild: Sky
Sir Alex Ferguson er ekki sammála gagnrýnendum Dimitar Berbatov sem segja að hann leggi ekki nógu mikið á sig og hægi á liðinu. Framherjinn gekk í raðir Man Utd í sumar frá Tottenham en hefur ekki fallið í kramið hjá öllum stuðningsmönnum liðsins.
,,Ég er ekki sammála þeirri gagnrýni að hann hægi á okkur. Ég er alls ekki sammála því. Staðreyndin er sú að ég held að við höfum ekki notað hann nóg," sagði Ferguson við Daily Star.
,,Hann er fínn, en þetta er eins og með allt annað. Í hvert sinn sem leikmaður kemur hingað, ef það er leið til að gagnrýna hann, þá finna þeir hana. Þeir segja að hann sé hitt eða þetta. En tölfræðin hans er ótrúleg."
,,Hann hljóp meira (gegn Middlesbrough) á mánudagskvöld en nokkur annar framherji, þar á meðal Rooney. Ég held að daufur stíll yfir honum sé vandamálið. Tölfræðin myndi hinsvegar gera ykkur hissa, en kmeur mér ekki á óvart. Ég lít ekki alltaf á tölfræði, ef ég á að segja eins og er, en þó er gott að vita hana í þessu tilfelli."



