Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 14:10
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Kaká vonar að Beckham verði lengur
Brasilíska stjórstjarnan Kaká sem leikur með AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni segist vona að David Beckham framlengi lánið sitt hjá félaginu þegar það er á enda.

Beckham, sem er 33 ára gamall var kynntur fyrir stuttu fyrir stuðningsmönnum félagsins eftir að hafa komi á láni frá bandaríska MLS liðinu Los Angeles Galaxy.

Hann fær aðeins tvo mánuði til að halda sér í formi hjá Milan áður en hann snýr aftur til Bandaríkjanna, en Kaká telur Beckham þó geta náð góðu árangri hjá liðinu.

Kaká segist vona að þessi fyrrum fyrirliði enska landsliðsins verði lengur en hann áætlaði og ætlar að halda leynilegan fund með Beckham til að sannfæra hann um að vera áfram.

,,Beckham er frábær náungi. Hann kemur til okkar með hæfileika og atvinnumennska hans getur hjálpað okkur," sagði Kaká.

,,Við vonum að hann getur verið lengur en lánið hans segir til um. Ég mun spyrja hann út í það. Hann er frábær leikmaður sem getur ennþá spilað í stærstu keppnum heim, ensku, ítölsku og spænsku deildinni."

,,Hann er ennþá stórstjarna og getur spilað í hæsta gæðaflokki um langan tíma,"
sagði Kaká enn fremur.
Slapp
banner
banner
banner