Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 04. janúar 2009 15:31
Magnús Már Einarsson
Enski bikarinn: Afmælisbarnið skaut Aston Villa áfram
Gillingham 1 - 2 Aston Villa
0-1 James Milner ('13)
1-1 Simeon Jackson ('57)
1-2 James Milner ('79, víti)

James Milner hélt upp á 23 ára afmæli sitt í dag með því að skora bæði mörk Aston Villa þegar að liðið sló Gillingham út í þriðju umferð enska bikarsins í dag.

Milner kom Aston Villa yfir á 13.mínútu með skoti frá vítateigslínu eftir samspil við Stilyan Petrov.

Gillingham, sem leikur í fjórðu efstu deild á Englandi, náði hins vegar að jafna á 57.mínútu þegar að Simeon Jackson braust í gegnum vörn Aston Villa og skoraði með skoti í stöng og inn.

Ashley Young náði að fiska vítaspyrnu fyrir Aston Villa um tuttugu mínútum síðar. Milner fór á punktinn og skaut Aston Villa áfram í fjórðu umferðina með því að skora af öryggi.
Slapp
banner
banner
banner