Nú rétt í þessu var dregið í 4.umferð enska bikarsins. Liverpool og Everton munu mætast í grannaslag á Anfield en liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni 19.janúar og síðan í bikarnum 24 eða 25.janúar.
Sigurvegarinn úr leik Southampton og Manchester United fær heimaleik gegn Tottenham, Cardiff og Arsenal mætast og Chelsea mun mæta Ipswich ef liðinu tekst að leggja Southend.
Sigurvegarinn úr Íslendingaslag QPR og Burnley mun mæta sigurvegaranum úr viðureign WBA og Peterborough og Aron Einar Gunnarsson og félagar í Coventry munu mæta utandeildarliði Torquay á útivelli.
Drátturinn í 4.umferð:
Liverpool - Everton
Southampton/Man Utd - Tottenham
Hull/Newcastle - Millwall/Crewe
Sunderland/Blyth - Blackburn
Hartlepool - West Ham
Leyton Orient/Sheff Utd - Charlton/Norwich
Cardiff - Arsenal
Portsmouth/Bristol City - Histon/Swansea
Chelsea/Southend - Ipswich
Cheltenham/Doncaster - Aston Villa
West Brom/Peterborough - QPR/Burnley
Torquay - Coventry
Kettering Town - Fulham
Watford - Leicester/Crystal Palace
Derby County - Nottingham Forest
Birmingham City/ Wolves - Middlesbrough
Leikirnir fara fram helgina 24/25.janúar.




