Heimild: Goal.com
Börsungar höfðu heppnina með sér gegn Real Mallorca í gærkveldi
Leikmenn Real Mallorca voru ekki á eitt sáttir með annað mark Börsunga sem Andres Iniesta skoraði í viðureign liðanna á Nývangi í gær. Lionel Scaloni varnarmaður þeirra gengur svo langt að segja að þetta séu ein verstu mistök sem hann hafi upplifað.
Gestirnir frá Mallorca stóðu lengi vel upp í hárinu á Barcelona liðinu á fyrsta leikdegi eftir jólafrí í spænsku deildinni en urðu að játa sig sigraða 3-1 að lokum eftir mörk frá Yaya Toure og Andres Iniesta.
Annað mark Katalóníuliðsins fór sérlega illa í leikmenn Mallorca en þeir vildu meina að landsliðsmaður okkur Íslendinga, Eiður Smári hafi verið rangstæður í aðdraganda marksins.
Það verður að viðurkennast að þeir hafa nokkuð til síns máls en aðstoðardómarinn kaus að halda flagginu niðri og Eiður gaf glæsilega sendingu á Iniesta sem skoraði auðveldlega, en spænski landsliðsmaðurinn var nýkominn inn á sem varamaður eftir að hafa verið frá í nokkrar vikur vegna meiðsla.
Gregorio Manzano þjálfari Mallorca lét vel í ljós óánægju sína með þessa ákvörðun aðstoðardómarans og sagði að þessi mistök hefðu breytt leiknum. Varnarmaður liðsins Lionel Scaloni hefur jafnvel gengið en lengra í gagnrýni sinni á þessu umdeilda marki en þjálfarinn.
,,Ég hef spilað fótbolta í mörg ár en þetta atvik frá leiknum í gærkveldi eru án vafa verstu mistök sem ég hef upplifað á mínum ferli. Dómarinn sýndi okkur mikla lítils virðingu og öll vafaatriði féllu í hlut Börsunga," sagði argentíski varnarmaðurinn Scaloni.
Lið Mallorca sem er í bullandi fallbaráttu sýndi góða frammistöðu gegn Barcelona og náði forystunni eftir fimmtán mínútna leik þökk sé marki frá hinum hæfileikaríka framherja Aritz Aduriz.
Staðan var 1-1 þangað til fjórtán mínútur lifðu eftir af leiknum en þá átti sér þetta umdeilda atvik sér stað og leikmenn Real Mallorca mótmæltu ítrekað en án árangurs.



