Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 04. janúar 2009 17:37
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Heimasíða Barcelona 
Eiður Smári: Mjög mikilvægur sigur
Eiður Smári Guðjohnsen leikmaður Barcelona segir að sigur liðsins á Mallorca í gær hafi verið mikilvægur.

Eiður Smári var í byrjunarliði liðsins og lék allan leikinn á miðjunni og lagði upp mark.

,,Það tók okkur smá tíma að komast í gang en þetta var mjög mikilvægur sigur," sagði Eiður Smári.

,,Þegar janúar klárast þá verður enn mikið eftir. Hver sigur færir okkur einu skrefi nær titlinum en ég vil frekar hugsa um næsta leik og taka þrjú stig þar."

,,Hvernig liðið lagði sig fram er gott því við vorum ekki að spila okkar besta bolta en náðum í sigur."

,,Ég er ánægður að Iniesta er kominn aftur því hann hefur mátt þola mikið."

,,Við verðum að gleyma síðasta leik gegn Atletico Madrid því þeir eru góðir, við verðum að ná í góð úrslit í Madrid."

Slapp
banner
banner