Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 18:05
Magnús Már Einarsson
Enski bikarinn: Man Utd sigraði Southampton auðveldlega
Southampton 0 - 3 Manchester United
0-1 Danny Welbeck ('20)
0-2 Nani ('48, víti)
0-3 Darron Gibson ('81)
Rautt spjald: Matt Paterson (36) (Southampton)

Manchester United sigraði Southampton örugglega 3-0 nú síðdegis og tryggði sér þar með sæti í fjórðu umferð enska bikarsins þar sem liðið mun mæta Tottenham á heimavelli.

Danny Welbeck braut ísinn í dag þegar hann skoraði með skalla eftir að Kelvin Davis hafði áður varið skalla John O'Shea í slána.

Áður en fyrri hálfleikurinn var úti fékk Matt Paterson leikmaður Southampton að líta rauða spjaldið fyrir tæklingu á Nemanja Vidic.

Mike Riley dómari leiksins lækkaði síðan ennþá meira í vinsældum hjá Southampton mönnum þegar hann færði Manchester United vítaspyrnu á silfurfati í upphafi síðari hálfleiks. Riley taldi boltann hafa farið í hendina á David McGoldrick og Nani fór á punktinn og skoraði.

United hefði getað bætt við mörkum áður en Darron Gibson skoraði þriðja markið eftir undirbúning frá Wayne Rooney og lokatölur 3-0.
Slapp
banner
banner