Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 20:09
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Jan Poortvliet: Ekki auðvelt að leika 10 gegn Man Utd
Jan Poortvliet stjóri Southampton var allt annað en ánægður með Mike Riley dómara í leik liðsins gegn Manchester United í þriðju umferð enska bikarsins í dag.

Manchester United hafði mikla yfirburði frá byrjun og sigraði að lokum verðskuldað 3-0 en Poortvliet var hins vegar ekki ánægður með frammistöðu Riley.

Riley dæmdi umdeilda vítaspyrnu í leiknum og þá sýndi hann Matthew Paterson rauða spjaldið í fyrri hálfleiknum.

,,Ég tel að þetta hafi ekki verið í vítaspyrna og rautt spjald og fyrsta markið var rangstaða þannig að við vorum óheppnir," sagði Poortvliet.

,,Í rauða spjaldinu sagði dómarinn mér að hann hefði farið með báðar fætur á undan sér en hann náði boltanum með öðrum fætinum. Þetta breytti leiknum. Menn segja að dómararnir í Englandi séu bestir í heimi en svona ákvarðanir virðast aldrei falla okkur í hag."

,,Ég finn til með strákunum því að þeir lögðu hart að sér og verðskulduðu meira en þetta, mér fannst við verjast vel. Við lékum gegn mjög góðu liði, þeir eru góðir á boltann. Við byrjuðum vel en bárum síðan aðeins og mikla virðingu fyrir þeim."

,,Ég tel að strákarnir hafi staðið sig vel en þegar þú spilar með 10 menn gegn Manchester United þá er það ekki auðvelt."

Slapp
banner
banner