Heimild: Channel 4
Við höfum greint frá seinkomu Brasilíumannsins Adriano til æfinga hjá Inter Milan fyrir helgi en hann mætti ekki á æfingu liðsins á föstudag. Á laugardagsmorgun mætti hann hinsvegar en þá sendi félagið frá sér yfirlýsingu um að Adriano hafi mætt á föstudeginum en hafi verið í læknisskoðun. Nú er komið í ljós að það er ósatt.
Það staðfesti umboðsmaður Adriano í gær en leikmaðurinn lenti ekki á Ítalíu fyrr en 20:13 á föstudagskvöldinu. Flavio Pinto umboðsmaður hans segir að ástæðan hafi verið að Inter bókaði ekki flugmiða Adriano heim úr jólafríinu í Brasilíu.
,,Það var misskilningur milli Adriano og félagsins," sagði Pinto við Gobo Exporte.
,,Inter hafði ekki bókað, eins og þeir gera venjuelga, flug Adriano heim frá Brasilíu. Þetta þýddi að hann var ekki með sæti í réttu flugvélinni. Hann varð því að skipuleggja flugið sjálfur og borga miðann úr eigin vasa."
Á laugardagsmorgun mætti Adriano svo fyrir 09:00, klukkutíma á undan hópnum. Hann æfði þó ekki með liðinu en byrjaði á að ræða við knattspyrnustjórann Jose Mourinho í fmm mínútur áður en hann fór í líkamsræktarsalinn með einkaþjálfara, enda er hann að jafna sig eftir tognun á læri.
Í gær fullyrtu ítalskir miðlar svo að Adriano fengi 150 þúsund evra sekt fyrir að mæta of seint en svo virðist sem félagið geti sjálfu sér um kennt.


