Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 21:19
Magnús Már Einarsson
Heimild: AFP 
David Villa vill vera áfram hjá Valencia
David Villa framherji Valencia segist vilja leika með félaginu næstu sex árin og klára þannig samning sinn.

Villa, sem er 27 ára, hefur verið orðaður við Manchester City en hann segist ekki hafa áhuga á að fara frá Valencia.

Í yfirlýsingu á heimasíðu Valencia í dag kemur fram að Villa vilji klára sex ára samninginn sem hann gerði við félagið síðastliðið sumar.

Villa hefur verið iðinn við kolann í vetur en hann skoraði í 3-1 sigri á Atletico Madrid í gærkvöldi og hefur nú gert þrettán mörk á leiktíðinni.
Slapp
banner
banner