Heimild: Channel 4
Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands kom fram í ítölskum fjölmiðlum um helgina og ráðlagði Riccardo Montolivo leikmanni Fiorentina að líkja ekki eftir Steven Gerrard fyrirliða Liverpool og leikmanni enska landsliðsins að öllu leiti.
Gerrard var nýlega ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað eftir að hafa verið handtekinn aðfararnótt 29. desember. Gerrard hefur oft verið fyrirmynd ungra ítalskra leikmanna og er í guðatölu hjá Montolivo.
,,Vonum að hann vilji ekki líkja eftir Gerrard á allan hátt, sérstaklega með tilliti til nýjustu hegðunar hans," sagði Capello á Firenzeviola.it.
Ekki er ljóst hvort Capello muni refsa Gerrard með því að velja hann ekki í landsliðið þar til málið hefur farið sína leið í dómskerfinu en Liverpool hefur lýst yfir stuðningi við leikmanninn.
Capello ræddi við Montolivo þegar hann heimsótti æfingabúðir Fiorentina í Marbella í fyrrakvöld. Montolivo vilti ekki tjá sig um nýjustu hegðun Gerrard.
,,Gerrard er sá besti og ég tjái mig ekki um það sem hann lenti í á síðustu dögum," sagði Montolivo.
,,Lippi (landsliðsþjálfari Ítalíu) sagði mér að slaka á og ég vona að ég muni fá fleiri tækifæri til að sanna mig með Azzurri (ítalska landsliðið) í framtíðinni."
,,Ég þakka öllum fyrir hrósið og vonandi get ég orðið mikilvægur leikmaður fyrir Fiorentina. Ég er í góðu formi líkamlega núna og það er næstum því eins og völlurinn sé orðinn minni."


