Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Umboðsmaður: Chelsea er ekki á eftir Cicinho
Brasilíski bakvörðurinn Cicinho er ekki á förum frá Roma og ekkert er til í þeim sögusögnum að Chelsea hafi sýnt honum áhuga að sögn Ricardo Sarti umboðsmanns leikmannsins.

Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur einungis leikið átta leiki á tímabilinu og hefur verið orðaður við nokkur félög að undanförnu, þar á meðal Chelsea.

,,Hér í Brasilíu sagði ég fjölmiðlum að hann vilji vera áfram hjá Roma," sagði Sarti við Corriere dello Sport á Ítalíu.

,;Varðandi áhuga Chelsea þá hef ég einungis lesið um það í dagblöðum. Ég talaði við Cicinho og hann er rólegur."

,,Í Brasilíu eru þeir meira að segja að tala um áhuga frá Santos og Internacional en það er ekkert til í því, hann vill einungis spila fyrir Roma."

Slapp
banner
banner
banner