Heimild: Setanta
Lyon hefur ekki lengur áhuga á Pascal Chimbonda varnarmanni Sunderland en frá þessu greindi umboðsmaður hans í gær.
Chimbonda hefur átt erfitt uppdráttar hjá Sunderland síðan hann kom til félagsins frá Tottenham í sumar.
Í nóvember lýsti Chimbonda því yfir að hann hefði áhuga á að fara til Lyon en nú er líklegt að ekkert verði af því.
,,Þetta er dautt. Það eru engar fréttir frá Lyon," sagði Roger Boli umboðsmaður Chimbonda.
,,Vandamálið hjá Pascal er einungis innan félagsins. Við erum að bíða, hlutirnir munu gerast."


