Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 05. janúar 2009 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Channel 4 
Leyndarmálið við skiplagða óreiðu hjá Catania opinberað
Catania hefur vakið mikla athygli fyrir föstu leikatriðin á leiktíðinni og þá sérstaklega eftir að leikmaður liðsins leysti niður um sig buxurnar í aukaspyrnu fyrir áramót. Nú hefur Walter Zenga þjálfari liðsins leyst frá skjóðunni um að galdramaðurinn á bakvið þetta allt saman sé aðstoðarmaður hans, Gianni Vio.

,,Að gera mest úr föstum leikatriðum er eins og að hafa auka framherja," sagði Vio við Gazetta dello Sport í gær.

,,Félagið áttaði sig á hversu mikilvægt er að búa til mörg afbrigði, þar sem 40-50 prósent marktækifæra koma úr atvikum þar sem boltinn liggur kyrr."

Catania hefur sýnt ýmis skemmtileg afbrigði eins og að fara allir inn í vítateiginn og hlaupa svo inn í rangstöðu nokkru áður en boltanum er spyrnt til að andstæðingurinn átti sig ekki á hvern á að dekka.

,,Til þessa höfum við komið með nýtt afbrigði í hvern leik. Ég vil kalla þetta skipulagða óreiðu. Zenga hringdi í mig árið 2005 þegar hann stýrði Rauðu Stjörnunni í Belgrad því hann hafði lesið bókina mína um föst leikatriði."

,,Sannleikurinn er að ef við tökum hornspyrnur með, þá eru þetta 4380 mismunandi afbrigði."


Frægasta atvikið var áðurnefnt atvik þegar Guiseppe Mascara skoraði úr aukaspyrnu gegn Torino en Gianvito Plasmati hafði látið buxurnar falla til að trufla Matteo Sereni í markinu.

Margir fordæmdu atvikið sem átti sér stað 16. nóvember og sögðu að um óíþróttamannslega hegðun væri að ræða, nánast svindl, en þeir fengu þó líka hrós fyrir því Plasmati hefur nú fengið verðlaun frá heimabæ sínum, Matera, fyrir að gera bæinn frægari. Móðir hans var þó ekki á sama máli og bæjarstjórinn og sagði að sonur sinn væri vondur strákur.
Slapp
banner