Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 05. janúar 2009 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Downing óskar eftir sölu frá Middlesbrough í dag
Sky Sports sagðist í gærkvöld hafa heimildir fyrir því að Stewart Downing muni óska eftir sölu frá Middlesbrough í dag.

Downing sem er enskur landsliðsmaður hefur verið orðaður við Tottenham í janúarglugganum en Lundúnarfélagið bauð í hann 6 milljónir punda á dögunum.

Keith Lamb framkvæmdastjóri Boro kom svo fram í enskum fjölmiðlum í gær og var móðgaður yfir tilboðinu sem hann sagði að væri hlægilegt.

Downing og umboðsmaður hans hafa enn ekki tjáð sig um stöðuna en samkvæmt Sky Sports News verður lögð fram formleg ósk um félagaskipti til Gareth Southgate knattspyrnustjóra og stjórnar félagsins í dag.

Southgate hefur verið ákveðinn í að selja Downing ekki en óljóst er hvað gerist eftir að þessi staða kemur upp.

Downing skrifaði undir fimm ára samning í febrúar en virðist nú tilbúinn að hætta hjá félaginu sem hann hefur alltaf stutt síðan hann var krakki.
Slapp
banner
banner