Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 04. janúar 2009 22:05
Magnús Már Einarsson
Spánn: Sevilla mistókst að komast upp í þriðja sæti
Sevilla og Osasuna gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í spænska boltanum þar sem Walter Pandiani tryggði gestunum stig með því að jafna undir lokin.

Sevilla mistókst þar með að komast upp fyrir Real Madrid í þriðja sæti deildarinnar en liðin eru nú jöfn með 32 stig.

Deportivo La Coruña lagði síðan Getafe 2-1 í kvöld í síðasta leik 17.umferðarinnar á Spáni.

Staðan í spænsku úrvalsdeildinni

Sevilla 1 - 1 Osasuna
1-0 Jesús Navas ('49)
1-1 W. Pandiani ('90)

Getafe 1 - 2 Deportivo La Coruña
0-1 R. Bodipo ('6)
1-1 Manu del Moral ('15)
1-2 Sergio ('81, víti)
Slapp
banner