Heimild: AP
David Beckham sagði í gær að hann hafi ekki gengið í raðir AC Milan til að komast í enska landsliðið og lofaði að gera sitt allra besta í búningi Milan.
Beckham er genginn í raðir AC Milan á láni frá LA Galaxy í Bandaríkjunum næstu þrjá mánuðina en svo snýr hann aftur til Bandaríkjanna þegar deildin þar hefst. Hanne r núna í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum á vetraræfingum Milan.
Hann á aðeins eftir einn leik til að jafna leikjamet Bobby Moore sem var fyrirliði enska landsliðsins sem vann HM 1966. Moore spilaði 108 leiki fyrir England sem útileikmaður en Beckham vantar enn leikinn til að jafna það.
,,Ég kom ekki til Milan af þeirri ástæðu, að spila í Evrópu og gera mig kláran fyrir val í enska landsliðið," sagði Beckham á fréttamannafundi.
,,Ég hef aldrei spilað á Ítalíu og tel að hún sé ein af bestu deildum heims. Ég vil einbeita mér að því að vinna með liðinu. Ég veit hvernig lið Milan er, fagmennskuna sem er þar, og ég er tilbúinn að leggja mjög hart að mér fyrir sæti í hópnum."


