Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 05. janúar 2009 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AP 
Lei Clijsters fyrrverandi landsliðsmaður Belga látinn
Lei Clijsters fyrrverandi landsliðsmaður Belgíu lést í gær, 52 ára gamall. Belgíska dagblaðið Derniere Heure greindi frá þessu en hann hafði háð áralanga baráttu við lungnakrabba.

Clijsters spilaði 40 leiki fyrir belgíska landsliðið og tók þátt í Heimsmeistaramótunum 1985 og 1990. Árið 1986 komst Belgía í undanúrslitin með hann innanborðs.

Clijsters lék í vörninni hjá nokkrum belgískum félögum og var fyrirliði FC Mechelen þegar liðið vann Evrópukeppni bikarhafa árið 1988 eftir að hafa lagt Ajax í úrslitum.

Eftir að hann lagði skóna á hilluna sneri hann sér að því að stýra tennisferli dóttur sinnar, Kim Clijsters en hætti því árið 2007. Kim Clijsters vann U.S. Open árið 2005.
Slapp
banner
banner