Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 07:49
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Kasper Schmeicel vill yfirgefa Man City
Kasper Schmeicel í leik með danska U21 árs landsliðinu á KR-velli í sumar.
Kasper Schmeicel í leik með danska U21 árs landsliðinu á KR-velli í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Umboðsmaður danska markvarðarins Kasper Schmeichel segir að hann sé tilbúinn að yfirgefa Manchester City.

Schmeichel er sonur Peter Schmeichel fyrrverandi markmanns Manchester Unitd og Manchester City. Sá yngri hefur fallið niður goggunarröðina hjá City síðan Joe Hart varð aðalmarkvörður.

Talið er að City muni taka einnar milljón punda tilboði í Schmeichel sem hefur staðið sig vel þegar hann hefur verið lánaður frá félagnu.

Michael Johansen umboðsmaður þessa 22 ára gamla markmanns segir að hann gæti farið fljótlega.

,,Verðmiðinn gæti verið hár, en hinsvegar hefur hann staðið sig vel meðal þeirra bestu," sagði hann við Ekstra Bladet.

,,Því erum við að vinna að því að Kasper fari í félagaskiptaglugganum."
Slapp
banner