Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 05. janúar 2009 08:01
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Fleiri lið hafa áhuga á Ferguson
Enska úrvalsldeildarfélagið Newcastle United opinberaði nýlega áhuga sinn á Barry Ferguson leikmanni Rangers í Skotlandi. Þeir gætu þó þurft að berjast harkalega um leikmanninn því samkvæmt Sky hafa önnur úrvalsdeildarlið sýnt áhuga.

Joe Kinnear stjóri Newcastle vonast til að geta sannfært kollega sinn hjá Rangers, Walter Smith, um að selja fyrirliðann sinn, en fréttir herma að skoska stórliðið sé í talsverðum fjárhagskröggum.

Fréttir af áhuga Newcastle á þessum snjalla miðjumanni hafa opnað augu annarra félaga og fylgjast þau náið með stöðu mála. Ferguson á 18 mánuði eftir af samningi sínum en viðræður um nýjan samning hafa ekki enn verið hafnar.

Þessi 30 ára miðjumaður gæti hæglega hafnað samningstilboði frá Rangers og skrifað undir hjá öðru félagi í janúar næstkomandi og vilja Skotarnir líklega komast hjá því. Það gæti þó reynst þeim erfitt að hafna góðu tilboði í fyrirliðann, en hann verður fljótlega 31 árs gamall.
Slapp
banner