Heimild: BBC
Walter Smith knattspyrnustjóri Glasgow Rangers er hissa á ummælum Joe Kinnear knattspyrnustjóra Newcastle United þess efnis að hann hafi sent fyrirspurn um Barry Ferguson fyrirliða liðsins enda hefur hann ekkert hert frá honum.
,,Ef ummælin eru rétt þá er það skrítið," sagði Smith. ,,Formaðurinn, framkvæmdastjórinn og ég höfum ekkert heyrt frá Newcastle eða nokkru öðru félagi varðandi Barry."
Smith viðurkenndi þó að ef gott tilboð kæmi í leikmanninn þá yrðu þeir að íhuga það.
,,ÉG hef ekki nein áhrif á hver vill leggja fram tilboð í leikmenn Rangers," sagði Smith. ,,En það sem fótboltastjóri getur sagt er að ef einhver kemur og leggur fram tilboð í einn af leikmönnum hans þá verður að íhuga það."
,,Maður verður að gera það og við gerðum það með alan Hutton, og ef einhver kemur þá verðum við að gefa þeim svar, en til þessa er eina tilboðið sem við höfum séð í Alan Gow frá Wolverhampton."




