Heimild: Setanta
Egypski framherjinn Mido virðist vera á förum frá félaginu en bróðir hans sagði í gær að hann myndi fara því hann vilj fá að spila meira.
,,Mido er við það að yfirgefa Middlesbrough því hann vill spila reglulega," sagði Tamer Hossan Wasfi bróðir hans við FilGoal.com í gær.
,,Það hafa félög um miðja deildina á Englandi haft samband við hann en hann er enn að íhuga hvað hann á að gera næst."
Mido var orðaður við Wigan í sumar en Wasfi útilokaði að bróðir hans færi þangað í janúar. ,,Ég held að Mido hefði myndi ekki fara þangað þó þeir hefðu áhuga," sagði hann.




