Heimild: Sky
Scott Parker miðjumaður West Ham mun ganga í raðir Manchester City í dag eða á morgun samkvæmt heimildum Sky Sports News.
Parker ku þegar hafa rætt við forráðamenn City og mun hann fá 70 þúsund pund í vikulaun hjá félaginu.
Manchester City hefur verið á eftir miðjumanni og félagið hafði fyrst áhuga á Lassana Diarra. Eftir að hann gekk í raðir Real Madrid ákvað félagið hins vegar að snúa sér að Parker.
Gianfranco Zola stjóri West Ham vill vafalítið halda í Parker en líklegt er hins vegar að hann neyðist til að selja leikmanninn.
Parker hefur verið að finna sitt gamla form eftir að hann gekk í raðir West Ham en áður hafði hann leikið með Chelsea, Newcastle og Charlton.




