Heimild: Independent
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool mun eiga erfiða viku síðar í janúar þegar hann þarf að leika tvo leiki með liði sínu gegn erkiféndunum í Everton en á milli þeirra þarf hann að mæta fyrir dómara og svara til saka vegna líkamsárásarákæru.
Mánudaginn 19. janúar næstkomandi mætir Liverpool liði Everton á Anfield en leikurinn er liður í ensku úrvalsdeildinni. Alltaf er mikið fjör í viðureignum þessara liða og alveg ljóst að Gerrard spilar með í þessum leik nema eitthvað óvænt komi uppá.
23. janúar á Gerrard svo að mæta fyrir dómara. Hann var handtekinn aðfararnótt 29. desember síðastliðinn fyrir líkamsárás á skemmtistað í Southport en sleppt um sólarhring síðar gegn tryggingu með þau skilaboð að mæta fyrir dómara þennan dag.
Í gær varð svo ljóst að vikunni lýkur svo með öðrum leik gegn Everton, nú í enska bikarnum, FA Cup. Dregið var seinnipartinn í gær í fjórðu umferð bikarsins og þar drógust erkiféndurnir saman að nýju og aftur verður leikið á Anfield 24. eða 25. janúar.



