Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 09:20
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið: Defoe til Tottenham?
Þá er komið að daglegum slúðurpakka frá fréttastofu BBC á þessum ferska mándagsmorgni og nóg um að vera í slúðrinu.


Tottenham:

Tottenham er nálægt því að landa enska framherjanum Jermain Defoe sem leikur með Portsmouth á 15 milljónir punda. (Ýmsir miðlar)

Harry Redknapp, stjóri Tottenham er einnig að vonast til þess að fá Pascal Chimbonda aftur til félagsins á láni frá Sunderland. (The Sun)

Chimbonda bjóst við því að fara til frönsku meistarana í Lyon, en hætt hefur verið við það samkvæmt umboðsmanni leikmannsins. (Daily Star)

Redknapp hefur þá spurst fyrir um Matthew Upson, varnarmanni West Ham United, en hann er metinn á 12 milljónir punda. (Daily Mirror)

Þá hefur 12 milljón punda tilboði Tottenham í Stewart Downing, vængmann Middlesbrough verið hafnað. (Daily Mirror)

Ef Middlesbrough missa Downing til Tottenham þá munu þeir bjóða í Stephen Hunt, leikmann Reading í stað hans. (Daily Mail)

Annað slúður:

AC Milan er að undirbúa 8 milljóna punda tilboð í danska varnarmannin Daniel Agger hjá Liverpool. (Gazzetta dello Sport)

Carlos Tevez, framherji Manchester United hefur lýst því yfir að hann vilji vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir sögusagnir um helgina að hann vildi yfirgefa Old Trafford. (The Sun)

Newcastle er að vonast til þess að selja Jose Enrique og Xisco ásamt Alan Smith og Charles N'Zogbia. (The Sun)

Arsenal gættu misst undradrenginn Theo Walcott ódýrt þar sem félagið hefur dregið samningsviðræður á langinn. (Daily Express)

Stoke City hafa áhuga á að fá framherjann Henri Camara frá Wigan. (Daily Mirror)

Kasper Schmeichel, markvörður Manchester City er reiðubúinn að yfirgefa félagið eftir að hann féll niður goggunarröðinni í markavarðarstöðunni. (Daily Mail)

Aston Villa stjórna viðræðum við Milan Jovanovic, framherja Standard Liege, en Everton er einnig sagðir á eftir kappanum. (Daily Mail)

Fulham og Hull City er að berjast um James Beattie, framherja Sheffield United sem lék á sínum tíma með Everton. (Daily Mail)

Manchester City hafa endurvakið tilboð sitt í Kolo Toure, varnarmann Arsenal. (Daily Mail)

Þá er búist við því að Manchester City klári kaupin á Scott Parker, miðvallarleikmanni West Ham United og Roque Santa Cruz, framherja Blackburn Rovers á næstu dögum. (Daily Mail)

Mark Hughes, stjóri Man City mun þá einnig gera bætt tilboð í Craig Bellamy, framherja West Ham. (Daily Express)

Glasgow Rangers hafa neitað því að Newcastle hafi boðið í skoska miðvallarleikmanninn Barry Ferguson. (Daily Express)

Scott Brown, miðjumaður Glasgow Celtic sem hefur verið orðaður við Portsmouth og West Ham United ítrekaði það að hann muni ekki leita eftir því að fara fyrir háa upphæð í ensku úrvalsdeildina. (Daily Record)

Sunderland virðast vera að hafa betur gegn Blackburn og Portsmouth í kapphlaupinu um Modeste M'bami, miðjumanni Marseille. (The Sun)

Framtíð Mark Hughes, stjóra Manchester City hjá félaginu er örugg samkvæmt eigendum þrátt fyrir óvænt tap fyrir Nottingham Forest í FA bikarnum á dögunum. (Daily Mirror)

Joe Cole, leikmaður Chelsea mun leitast eftir því létta loftið milli hans og Luiz Felipe Scolari, stjóra liðsins eftir að honum var skipt útaf gegn Southend í FA bikarnum um helgina. (Daily Express)

Steve Gibson, eigandi Middlesbrough og Daniel Levy, framkvæmdarstjóri Tottenham skiptust á reiðilegum ummælum í símtali vegna beiðni Stewart Downing um að fara á sölulista. (Daily Mirror)

David Beckham, leikmaður LA Galaxy sem er á láni hjá ítalska stórliðinu AC Milan er á leið að splæsa 5 milljónum punda á íbúð í stærstu byggingu í Dubai sem er hönnuð af Giorgio Armani. (Daily Star)
Slapp