Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 10:03
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Goal.com 
Arjen Robben: Mitt besta mark til þessa fyrir Real Madrid
hollenski vængmaðurinn skoraði gull af marki í spænsku deildinni um helgina
Arjen Robben reyndist hetja Real Madrid þegar hann skoraði eina mark liðsins þegar spænsku meistararnir báru sigurorð af Villarreal og tryggði þar með stigin þrjú.

Real Madrid byrjaði árið 2009 á sama hátt og þeir enduðu árið 2008, en þeir náðu að landa naumum 1-0 sigri á Villarreal á Sandiego Bernabeu í gær.

Hollenski landsliðsmaðurinn, Arjen Robben skoraði sigurmarkið þegar hann lék framhjá fjórum varnarmönnum Villarreal áður en hann setti boltann í markhornið vinstra megin. Hinn 24 ára gamli vængmaður var skiljanlega í sjöunda himni eftir markið.

,,Ég held að þetta sé mitt besta mark til þessa fyrir Real Madrid. Við unnum vel fyrir sigrinum enda lögðu allir í liðinu á sig mikla vinnu," sagði Arjen Robben og bætti við.

,,Það mikilvægasta er að allir okkar leikmenn komust án meiðsla frá þessu leik og við héldum líka markinu hreinu. Núna, verðum við að bæta sóknina og skora fleiri mörk þannig að við fáum aukið sjálfstraust í liðið," sagði Robben.

Robben hélt áfram og talaði næst um samlanda sinn og nýjasta liðsmann Madridinga, Klaas-Jan Huntelaar sem keyptur var frá Ajax nú nýverið.

,,Huntelaar er frábær leikmaður, en hann hefur verið frá vegna meiðsla í fimm vikur og þetta reyndist honum dáldið erfiður leikur. Þetta var hans fyrsti leikur hér á Spáni og hann var óheppinn að skora ekki. Ég er þess fullviss að hann muni skora mörg mörk fyrir Madrid í framtíðinni," sagði Robben um samlanda sinn.

Að lokum tjáði þessi fyrrverandi leikmaður Chelsea sig um titilmöguleika Madrid en spænsku meistararnir eru 12 stigum á eftir Barcelona í þriðja sæti deildarinnar.

,,Það verður mjög erfitt að vinna þetta upp því 12 stiga forskot er ansi mikið, en við verðum bara að hugsa um okkur sjálfa og enga aðra. Þangað til 25. febrúar höfum við heila viku til að undirbúa okkur fyrir hvern leik, þannig að við verðum að leggja hart að okkur," sagði Arjen Robben að lokum.

Smellið hér til að sjá þetta glæsilega mark hjá Arjen Robben.
Slapp