Í Fótboltaþættinum á Útvarpi Sögu í dag kl 17 verður rætt við Jökul Ingason Elísabetarson fyrrverandi leikmann KR og Víkings sem hefur verið við nám í University of North Carolina í Greensboro undanfarin ár.
Jökull sló í gegn með skólaliði félagsins á þessu tímabili og áhugavert verður að heyra hvað tekur við hjá honum en hann var að útskriftast með stærðfræðigráðu frá UNC um daginn. Auk þess verður farið yfir leiki helgarinnar í enska bikarnum.
Umsjónarmenn þáttarins eru Björn Berg Gunnarsson og Kolbeinn Tumi Daðason.



