Heimild: Marca
José Manuel Barro Escandón dómari í leik Recreativo Linense og Saladillo de Algeciras sýndi alls 19 leikmönnum rauða spjaldið þegar að liðin áttust við í neðri deildunum á Spáni í gær.
Allt sauð upp úr á 54.mínútu leiksins þegar leikmenn fóru að slást og áhorfendur blönduðu sér í málið.
Dómarinn flautaði leikinn af en fór síðan í búningsherbergi beggja liða og gaf níu leikmönnum í hvoru liði rauða spjaldið.
Einn leikmaður hafði fengið að líta rauða spjaldið fyrr í leiknum og því voru alls nítján rauð spjöld í leiknum.
Vitanlega þurfa leikmennirnir að taka út leikbann í næsta leik og því er ljóst að bæði lið verða með nánast nýtt byrjunarlið um næstu helgi enda með níu og tíu menn í banni.



