Heimild: Sporting Life
Mikael Silvestre, varnarmaður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni verður frá í allt að þrjár vikur eftir að hann meiddist um helgina.
Silvestre, sem er 31 árs gamall þurfti að fara af velli í leik Arsenal gegn Plymouth í FA bikarnum um helgina, en aðeins 30 mínútur voru liðnar af leiknum.
Hann meiddist á læri og niðurstaðan sú að hann verður á hliðarlínunni næstu þrjár vikurnar samkvæmt læknum liðsins.
,,Þetta er meiðsli í læri hjá Silvestre, ég býst við að hann verði frá í þrjár vikur," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.
Nú eru þrír varnarmenn liðsins meiddir, en ásamt Silvestre eru það Gael Clichy og Kolo Toure og gefur þetta líklega Arsene Wenger, stjóra liðsins hausverk fyrir næsta leik þar sem meirihluti varnarmannana er núna meiddur.





