Heimild: BBC
Söngvarinn vinsæli Sir Elton John gæti snúið aftur til Watford, tveimur mánuðum eftir að hann gaf frá sér heiðursforseta titilinn hjá félaginu til að mótmæla því hvernig félagið er rekið í dag.
Elton John hefur tvisvar tekið við starfi formanns félagsins. Hann hitti leikmenn liðsins og starfsfólk eftir reglulegar viðræður við Brendan Rodgers knattspyrnustjóra liðsins.
,,Við höfum talað mikið saman undanfarnar vikur," sagði Rodgers við BBC útvarpið.
,,Hann er ein af tákmyndunum sem tengjast knattspyrnufélaginu Watford."
Elton John hafði gagnrýnt stjórn félagsins þegar Graham Simpson var formaður og Mark Ashton var framkvæmdastjóri en þeir eru núna báðir hættir hjá félaginu.
Hann hefur alltaf stutt Watford og tók fyrst við sem formaður árið 1976 þegar félagið var í gömlu fjórðu deildi9nni.
Er hann var við stjórnvölinn komst liðið tvisvar upp í efstu deildina og komst í úrslitaleik enska bikarsins, FA Cup.
,,Fólk eins og Elton John hafa verið tengdir hérna í mörg ár. Mér finnst mikilvægt að svona fólk eigi hlut í framtíðinni líka," hélt Rodgers áfram.
,,Ég var hæstánægður þegar hann tók boði mínu að koma á æfingasvæðið og það var frábært fyrir leikmennina og starfsfólkið."
,,Hann hringdi svo í mig þegar hann kom heim og þakkaði mér fyrir daginn. Það hafa stórir persónuleikar komið að sögu Watford, og það er mikilvægt að þeir séu með í framtíð Watford."
Ekki er ljóst hvaða stöðu Elton John gæti tekið hjá félaginu en Andrew Wilson sem er tímabundið formaður er að setja saman nýja stjórn. Félagið ætlar að reyna að sleppa við að selja markahæsta leikmanninn, Tommy Smith, í félagaskiptaglugganum.


