Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 13:00
Þórður Már Sigfússon
Heimild: BBC 
Chris Coleman: Aron verður orðaður við stór félög
Aron Gunnarsson
Aron Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Chris Coleman, þjálfari enska 1. deildarliðsins Coventry, segir í samtali við fjölmiðla þar í landi að Aron Gunnarsson sé einn þeirra leikmanna liðsins sem munu verða orðaðir við stór félög á komandi misserum. Hins vegar hafi félagið ekki í hyggju að selja þá.

,,Aron Gunnarsson, Keiren Westwood, Dan Fox og Scott Dan koma allir til með að verða orðaðir við stór félög," sagði Coleman í samtali við BBC.

,,Þeir eru góðir leikmenn og eru sífellt að bæta sig. En við ætlum ekki að selja þá því við erum að byggja lið til framtíðar."

Aron, sem er einungis 19 ára gamall, hefur þótt einn besti leikmaður Coventry á keppnistímabilinu en hann gekk til liðs vð félagið frá hollenska úrvalsdeildarliðinu AZ Alkmaar í sumar.
Slapp
banner
banner
banner