Heimild: Sky
Argentíski framherjinn Carlos Tevez gæti verði með Manchester United í leiknum gegn Derby County í Carling Cup á miðvikudag en hann er kominn aftur til æfinga eftir að hafa misst af síðstu tveimur leikjum því hann fékk að fara í jólafrí til heimalandsins.
Hann hóf æfingar með liðinu í dag og gæti því verið með Manchester United á miðvikudagskvöld.
,,Carlos kemur aftur til æfinga á mánudag og hann verður með á miðvikudag," saðgi Sir Alex Ferguson stjóri liðsins við MUTV.
Tevez hefur verið frábær með liði Man Utd og átti stóran þátt í sigrum gegn QPR og Blackburn Rovers áður en hann fór í fríið.
Utan endurkomu hans býst Ferguson við að tefla fram sama leikmannahópi og vann Southampton 3-0 í þriðju umferð FA Cup á sunnudag.
,,Þetta verður nánast sami hópur. Ég gæti sleppt einum eða tveimur, en þetta verður meira og minna sami hópur leikmanna," sagði Ferguson.

