Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 13:39
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Valencia segir ekkert samkomulag við Barcelona um Villa
David Villa í baráttu við Grétar Rafn Steinsson á Laugardalsvelli.
David Villa í baráttu við Grétar Rafn Steinsson á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Valencia sagði í dag að félagið hafi ekki gert neitt samkomulag við Barcelona um sölu á framherjanum David Villa. Spænskir fjölmiðlar höfðu í gær sagt að Barcelona væri að nálgast samning um Villa en Valencia segir engan samning til.

,,Í ljósi rangra frétta sem nýlega komu fram, vill Valencia tilkynna formlega að leikmaðurinn David Villa og félagið hefur ekki gert neitt samkomulag, samning eða átt neinar viðræður um að leikmaðurinn yfirgefai félagið," sagði í yfirlýsingu á vefsíðu Valencia.

,,Við sýndum þegar síðasta sumar að Villa er mjög verðmætur leikmaður fyrir okkur og að frammistaða hans í liðinu okkar hefur bara aukið trú okkar á honum."

,,Það er algjörlega ósatt að félagið hafi gert samning við leikmanninn eða umboðsmann hans. David er ánægður hjá Valencia og við erum sáttir við framlag hans og frammistöðu."

,,Okkur finnst útgáfa svona frétta mjög óábyrg og enn meira þegar þær koma á sama degi og svo mikilvægur leikur,"
hélt yfirlýsingin áfram en liðið lék gegn Atletico Madrid í gær.

Villa tók undir þetta og sagði: ,,Já ég er með samning en hann er um sex ár og við Valencia, og ég vonast til að ljúka því ánægður og bæta jafnvel við öðru ári. Hver sem hefur trú á mér, frábært. Hver sem gerir það ekki getur sagt það sem hann vill. Sá eini sem tekur ákvörðunina er ég, ég er sá sem hefur völd yfir minni framtíð."
Slapp
banner
banner
banner