Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 13:49
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Soccernet 
Scott Brown hjá Celtic hefur ekki áhuga á ensku úrvalsdeildinni
lætur ekki freistast af gylliboðum og vill vera áfram í Skotlandi
Scott Brown miðjumaður Celtic og skoska landsliðsins hefur gefið það út að hann hafi ekki áhuga á að stökkva á vænlegt tilboð frá liði úr ensku úrvalsdeildinni.

Þessi 23 ára gamli leikmaður Celtic hefur verið sterklega orðaður við Portsmouth en enska liðið er talið hafa ætlað að greiða um 9 milljónir punda fyrir pilt. Þess má geta að Tottenham hafa einnig borið víurnar í leikmanninn.

Hvað sem öllum gylliboðum líður, þá kveðst hinn ungi Brown vera hæstánægður fyrir hönd knattspyrnustjóra síns Gordon Strachan að geta hafnað öllum tilboðum sem berast.

,,Ég er leikmaður Celtic og nýt þess til fullnustu. Ég vil að svo verði áfram. Ég nýt þess að vinna leiki og hlakka mikið til framtíðarinnar hjá félaginu. Það væri frábært ef enginn leikmaður væri seldur því ég er hæstánægður hér," sagði Scott Brown og bætti við.

,,Málið er að allir vilja spila í Meistaradeildinni eða í Evrópukeppni félagsliða. Við hér hjá Celtic vorum ákaflega vonsviknir að komast ekki lengra á þessu tímabili, en það er alltaf möguleiki á því næsta," sagði Brown að lokum.
Slapp
banner
banner
banner