Heimild: Sky
West Ham segir að Scott Parker leikmaður liðsins sé ekki til sölu en frá þessu greindi félagið í samtali við Sky Sports.
Parker er einn af þeim leikmönnum sem hefur verið orðaður við brottför frá West Ham en félagið er talið illa statt fjárhagslega.
Fréttir í gær sögðu að Parker væri á leið til Manchester City fyrir um 12 milljónir punda.
Talið var að West Ham myndi láta Parker sem er einn verðmætasti leikmaður liðsins fara vegna kreppunnar.




