Heimild: Soccernet
kaupin á Wayne Bridge aðeins byrjunin á verslunarleiðangri þeirra heiðbláu
Mark Hughes þjálfari Manchester City vill fá fimm nýja leikmenn til að rétta við slæmt gengi félagsins að undanförnu. Hinir heiðbláu leikmenn City fengu háðulega útreið um liðna helgi í ensku bikarkeppninni þegar Notthingham Forrest sló þá út 0-3 á þeirra eigin heimavelli í Manchester.
Aðeins tveimur dögum eftir að hinn nýi knattspyrnustjóri Notthingham Forrest, Billy Davies hafði tekið við liðinu, höfðu liðsmenn hans sem eru í fjórða neðsta sæti í Championship-deildinni slegið City út eftir frábæra frammistöðu.
Mark Hughes kynnti stuðningsmönnum félagsins fyrir nýjasta leikmanni liðsins, Wayne Bridge fyrir leikinn sem keyptur var á 10 milljónir punda frá Chelsea. En eftir skellinn gegn Notthingham er ljóst að Hughes vill fá fimm leikmenn til viðbótar.
Og þökk sé hinum vellauðuga eiganda City þá veit Mark Hughes að hann getur vel leyft sér að bregða sér í frekari verslunarleiðangur.
,,Við þurfum á fleiri leikmönnum að halda. Við höfum núna fengið Wayne Bridge og líklega þurfum við um fimm leikmenn til viðbótar. Að fá leikmenn í janúar getur oft á tíðum reynst erfitt," sagði Mark Hughes og bætti við.
,,Ég geri mér grein fyrir því að sumir af þeim leikmönnum sem við viljum fá til félagsins eru einfaldlega ekki fáanlegir. En við munum gera hvað við getum og kaupa leikmenn sem við teljum að muni gagnast okkur," sagði Mark Hughes að lokum.




