Heimild: RivalsDM
Óvenjulegt vandamál er komið upp hjá Hull City en félagið þarf að hanna nýja varabúninga fyrir bikarleikinn gegn Newcastle í næstu viku.
Í aðalbúningi Hull eru svartir litir og varabúningur félagsins er grár, eitthvað sem gengur ekki upp á móti svart-hvítu liði Newcastle.
Þegar að liðin mættust í september síðastliðnum þurfti Hull að fá lánaða hvítar stuttbuxur og sokka frá Newcastle en nú mun liðið þurfa að gera nýja búninga fyrir leikinn í næstu viku.
,,Við getum ekki leikið í aðalbúningi okkar og við getum ekki leikið í varabúningum. Vonandi getur Umbro gert eitthvað í málinu," sagði Phil Brown stjóri Hull.




