Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 05. janúar 2009 17:53
Magnús Már Einarsson
Lamine Diatta til reynslu hjá Stoke
Senegalski varnarmaðurinn Lamine Diatta er til reynslu hjá Stoke City þessa dagana.

Diatta, sem er 33 ára, hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Newcastle í maí á síðasta ári.

Hann hafði tveimur mánuðum áður samið við Newcastle en hann lék einungis tvo leiki með félaginu, báða eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Diatta hóf feril sinn með Toulouse í Frakklandi en hann var í liði Senegal á HM 2002.
Slapp
banner
banner
banner