Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 05. janúar 2009 16:11
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Jack Wilshere gerir atvinnumannasamning hjá Arsenal
Jack Wilshere, leikmaður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá félaginu.

Wilshere, sem varð 17 ára á nýársdag er yngsti leikmaður frá upphafi hjá félaginu til að spila í ensku úrvalsdeildinni og í Meistaradeild Evrópu.

Arsenal biðu ekki í langan tíma eftir að geta hafið samningaviðræður við leikmanninn sem hefur þegar spilað 7 leiki fyrir félagið á tímablilinu, en hans fyrsti leikur fyrir félagið kom 13.september gegn Blackburn.

,,Við erum hæstánægðir að Wilshere hefur skrifað undir atvinnumannasamning við okkur," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal.

,,Jack er leikmaður með frábæra hæfileika og með ótrúlega getu til að finna boltann, leika honum og skora mörk."

,,Hann er ástríðufullur og trúr, hann er ekki hræddur við að fara í tæklingar og ég er sannfærður um að hann eigi eftir skila frábærum árangri fyrir félagið á komandi árum,"
sagði Wenger enn fremur.

,,Við höfum þegar séð hæfileika hans á æfingum og í aðalliðsleikjum og við hlökkum til að sjá Jack verða mikilvægan part til liðsins á næstu árum," sagði hann að lokum.

Hans fyrsti leikur í Meistaradeildinni var gegn Dinamo Kiev þann 25. nóvember, og hans fyrsta mark kom gegn Sheffield United í 6-0 sigri í enska deildarbikarnum.
Slapp
banner
banner