Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 05. janúar 2009 16:09
Magnús Már Einarsson
Hörður Bjarnason laus undan samningi hjá Breiðablik
Hörður í leik með Víkingi síðastliðið sumar.
Hörður í leik með Víkingi síðastliðið sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Hörður Sigurjón Bjarnason er laus undan samningi hjá Breiðablik en endurskoðunarákvæði var í samningnum í síðasta mánuði. Þetta staðfesti Hörður við Fótbolta.net í dag.

Hörður kom til Blika frá Víkingi í sumar og samdi til ársins 2010 en nú er hann laus undan samningnum.

Í samtali við Fótbolta.net í dag sagðist Hörður ekki vera búinn að ákveða með framhaldið.

Þessi 27 ára gamli vinstri bakvörður hóf feril sinn hjá Blikum en árið 2005 gekk hann til liðs við Víking.

Hann hætti hjá Víkingi í byrjun síðasta sumars og í júlí samdi hann við Breiðablik. Hann lék síðan tvo leiki með Blikum í Landsbankadeildinni.
Slapp
banner