Heimild: Setanta
Emiliano Insúa, leikmaður Liverpool í ensku úrvalsdeildinni mun ekki leika með liðinu næsta mánuðinn vegna stórmóts hjá argentíska landsliðinu.
Insúa, sem er 19 ára gamall vinstri bakvörður hefur verið að stela senunni í byrjunarliði Liverpool upp á síðkastið með frábærri frammistöðu, en þegar tækifærin eru að gefast hjá leikmanninum þá virðist landsliðsverkefni ætla að trufla það.
Hann hefur verið kallaður í U-20 ára landslið Argentínu fyrir Suður-Ameríkukeppnina sem haldin er í Venezúela. Það verður til þess að hann missir af leikjum Liverpool gegn Stoke og Chelsea sem og tveimur leikjum gegn Everton.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir Rafael Benitez, stjóra Liverpool sem hefur látið Insúa byrja inná í síðustu fjórum leikjum liðsins og hefur leikmaðurinn staðið sig vel.
Hins vegar eru góðu fréttirnar fyrir Liverpool þær að Fabio Aurelio er klár í slaginn að nýju en hann lék með liðinu gegn Preston um helgina.



