Heimild: Sky
James Milner, leikmaður Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni segist vonast til þess að hann haldi áfram að skora reglulega fyrir liðið eftir að hann skoraði tvennu um helgina.
Milner, sem er 23 ára gamall vængmaður hefur verið að spila vel í síðustu leikjum fyrir Villa og skoraði meðal annars bæði mörk liðsins í 2-1 sigri gegn Gillingham í enska bikarnum um helgina.
Hann opnaði markareikninginn sinn um helgina og vonast til þess að halda áfram á sama skriði með félaginu, en hann kom frá Newcastle United í fyrrasumar.
,,Það var kominn tími til að ég kæmist á blað. Ég hafði gert allt nema að skora svo það var ágætt að fá tvennu. Aðalmálið var að komast áfram því við vissum að þetta yrði erfiður leikur," sagði Milner.
,,Vonandi get ég skorað nokkur áður en tímabilinu lýkur, en á meðan ég er leggja mig allan fram og skapa mörk, sem ég er að gera og sem lengi sem liður vinnur þá er mér sama þótt ég skori ekki. Bara að við höldum okkur á meðal efstu liða."


