Heimild: Heimasíða Barcelona
Josep Guardiola þjálfari Barcelona hefur ákveðið að hvíla Eið Smára Guðjohnsen, Victor Valdes, Xavi og Samuel Eto´o í leiknum gegn Atletico Madrid í spænska bikarnum annað kvöld.
Allir leikmennirnir voru í byrjunarliðinu þegar að Barcelona sigraði Mallorca 3-1 um helgina.
Carles Puyol, Rafael Márquez og Alexander Hleb verða heldur ekki með Börsungum á morgun vegna meiðsla.
Jorquera, Cáceres, Piqué, Pedro og Lionel Messi koma inn í hópinn en þeir voru ekki með gegn Mallorca um helgina.
Leikmannahópur Barcelona gegn Atletico:
Pinto, Jorquera, Piqué, Iniesta, Henry, Cáceres, Sylvinho, Bojan, Messi, Alves, Abidal, Keita, Touré Yaya, Busquets, Víctor Sánchez and Pedro.


