Heimild: Sky
Stephen Appiah er kominn til London þar sem hann mun æfa með Tottenham næstu dagana samkvæmt heimildum skysports.com.
Þessi knái miðjumaður frá Ghana hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Fenerbahce í ágúst.
Harry Redknapp stjóri Tottenham vill sjá Appiah á æfingum og nái þessi 26 ára leikmaður að standa sig er ekki ólíklegt að hann semji við Spurs.
Appiah hefur einnig verið orðaður við Juventus, Portsmouth og Schalke að undanförnu.



