Heimild: Sky
Franska úrvalsdeildarfélagið Marsielle er við það að fá sænska refinn Henrik Larsson að láni frá Helsingborg.
Larsson, sem er 37 ára gamall framherji var að ljúka tímabili sínu í Svíþjóð og leitar nú eftir því að fara á lán þangað til næsta tímabil hefst.
Svipuð félagaskipti gerði hann í janúar fyrir tveimur árum þegar hann fór á láni til Manchester United og nú lítur út fyrir að Marseille muni njóta þjónustu hjá þessum reynda framherja.
,,Ég vonast að þetta rætist á næstu tímum eða dögum og hjá Larsson er það mögulegt, " sagði Eric Gerets, þjálfari Marseille.



