Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 05. janúar 2009 18:54
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Heimasíða Barcelona 
Eiður Smári er tungumálaséní Barcelona
Þeir 24 leikmenn sem spila í aðalliði Barcelona tala samtals 17 mismunandi tungumál og vekur það athygli að það er okkar maður, Eiður Smári Guðjohnsen, sem talar flest þeirra.

Ásamt því að tala móðurmál sitt íslensku, talar Eiður einnig ensku, spænsku, hollensku og þýsku. Einnig getur hann skilið katelónsku, frönsku og dönsku.

Hollenskuna og þýskuna lærði hann á tíma sínum hjá PSV Eindhoven en frönskuna lærði hann í Belgíu þar sem hann bjó þegar faðir hans, Arnór Guðjohnsen, spilaði þar sem atvinnumaður hjá Anderlecht.

Á eftir Eiði Smára kemur góðvinur hans, Frakkinn Thierry Henry, sem talar ásamt móðurmáli sínu ítölsku, spænsku, ensku og hefur hann einnig góðan skilning á katelónsku.
Slapp
banner