Heimild: Sky
Samkvæmt Sky Sports hefur Stewart Downing leikmaður Middlesbrough nú þegar beðið um að vera settur á sölulista og er Tottenham talið hafa mikinn áhuga á leikmanninum. Tilboð þeirra hafa þó hingað til þótt ,,hlægileg" samkvæmt forráðamönnum Boro.
Stjórnarformaður Boro, Steve Gibson, hefur ítrekað að félagið muni ekki selja neina af sínum stóru nöfnum í janúar en það verður að koma í ljóst hvort að hann fái ósk sína uppfyllta.
Downing hefur ekki farið leynt með þrá sína til að yfirgefa félagið og er talið að Gary O'Neil og Mido séu einnig með hugann við brottför.
Faðir Downing, Stewart eldri, segir að ástæðan fyrir því að sonur sinn vilji fara sé sú að félagið hafi ekki staðið við gefin loforð.
,,Stewart hefur verið óánægður síðan í sumar ef ég á að segja eins og er," sagði hann.
,,Þegar hann skrifaði undir nýjan samning var honum gert ljóst að hópurinn yrði styrktur til muna og miklum fjárhæðum eytt í það."
,,Honum finnst liðið ekki hafa staðið undir væntingum í þeim efnum. Það fer einnig í taugarnar á honum að liðið er enn og aftur í basli í úrvalsdeildinni."
,,Auðvitað er þetta erfið ákvörðun fyrir hann, því hann er mikill Middlesbrough maður. En hann hefur tekið sér góðan tíma í að hugsa um þetta og hefur ákveðið að fara fram á að vera seldur og hann vonar að stuðningsmennirnir sýni sér skilning."


