Heimild: Sky
Rafa Benítez stjóri Liverpool hefur hvatt leikmenn sína til að halda áfram að einbeita sér að ensku úrvalsdeildinni eftir að ljóst var að liðið myndi mæta Everton í næstu umferð FA bikarsins.
Liðið hóf keppni með 2-0 sigri á Preston á laugardag og fengu þeir síðan að vita að þeir myndu mæta erkifjendum sínum í Bítlaborginni í baráttunni um að komast í fimmtu umferð bikarsins.
Benítez segist gera sér grein fyrir því að þessi leikur verði það sem verður talað hvað mest um í borginni út mánuðinn en minnir þó á að Liverpool hafi öðrum og ekki síður mikilvægum hnöppum að hneppa.
Sem stendur er Liverpool á toppi úrvalsdeildarinnar og munu þeir mæta Stoke laugardaginn næstkomandi og síðan munu þeir mæta Everton í deildinni þann 19. janúar, fimm dögum á undan bikarleiknum.
„Þessi leikur vekur mikla spennu um alla borgina, því allir vita að þessi tvö lið eru miklir erkifjendur,“ sagði Benítez á opinberri heimasíðu Liverpool.
„En við verðum að muna að við eigum stóra leiki framundan í deildinni áður en kemur að bikarleiknum – og við munum taka einn leik í einu.“
„Við munum ekki byrja að huga að bikarleiknum fyrr en það kemur að honum. Fyrst þurfum við að mæta Stoke og Everton í deildinni og við verðum að eineita okkur að þeim leikjum.“
„En það er gott að eiga svona marga mikilvæga leiki framundan því það sýnir að liðið er að standa sig vel.“

