Heimild: Sky
Fernando Torres var ekki lengi að komast aftur í gírinn þegar hann skoraði í sínum fyrsta leik eftir löng og erfið meiðsli. Markið skoraði hann á 90. mínútu í 2-0 sigri Liverpool á Preston í FA bikarnum.
Jamie Carragher, varafyrirliði Liverpool, telur að Spánverjinn snjalli muni gegna mikilvægu hlutverki fyrir Liverpool á næstkomandi mánuðum.
„Að fá Torres aftur hefur gefið öllum mikla upplyftingu. Það er frábært þegar maður fær leikmann af þessum gæðaflokki til baka fyrir seinni hluta tímabilsins,“ sagði Carragher.
„Við vonum að hann hafi bara endurnærst á þeim tíma sem hann var fjaverandi því síðasta tímabil var mjög langt fyrir hann vegna EM 2008 í sumar.“
„Margir leikmenn hafa spilað marga leiki á þessu tímabili vegna þess að stjórinn hefur ekki verið að gera mikið af breytingum á liðinu og það gefur öllum mjög mikið sjálfstraust að vera á toppi deildarinnar þó svo að við höfum verið án eins af bestu framherjum í heimi nánast allt tímabilið.“
„Maður saknar alltaf leikmanns af þessum gæðaflokki, en það mun hjálpa okkur mikið að fá hann til baka.“
Sjálfur segist Torres vera himinlifandi með að vera kominn aftur og viðurkennir hann að það hafi verið erfitt að sitja hjá og missa af svona mörgum leikjum.
,,Það er alltaf pirrandi þegar maður fær ekki að spila og maður missir af leikjum," sagði Torres.
,,Maður vill vera inni á vellinum að hjálpa liðfélögunum og leggja sig allan fram."
,,En þessi meiðsli eru núna bara liðin tíð og ég horfi einungis fram á veginn. Ég vona að ég sé laus við öll þessi nárameiðsli svo að ég geti haldið áfram að spila og skora hjá Liverpool."
,,Félagið hefur samt sem áður sýnt að þeir geta unnið leiki án þess að hafa mig eða Stevie (Steven Gerrard) og það er mjög mikilvægt. Það sýnir að við spilum sem eitt lið."


